20.08.2012

Velta á markaði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 10. ágúst til og með 16. ágúst 2012 var 132. Þar af voru 108 samningar um eignir í fjölbýli, 16 samningar um sérbýli og 8 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 3.468 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,3 milljónir króna.

Á sama tíma var 4 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 1 samningur um sérbýli. Heildarveltan var 44 milljónir króna og meðalupphæð á samning 10,9 milljónir króna.

Á sama tíma var 10 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 8 samningar um eignir í fjölbýli, 1 samningur um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 176 milljónir króna og meðalupphæð á samning 17,6 milljónir króna.

Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þeir voru um eignir í  sérbýli. Heildarveltan var 66 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,1 milljón króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 10. ágúst til og með 16. ágúst
Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 96 86 7 3 63
Seltjarnarnes 3 2 0 1 2
Mosfellsbær 4 2 2 0 3
Kópavogur 16 10 5 1 17
Hafnarfjörður 9 6 1 2 14
Garðabær 4 2 1 1 6
Álftanes 0 0 0 0 1
Samtals 132 108 16 8 106
Velta (millj. kr.) 3.468 3.118
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 26,3 29,3
Suðurnes 4 3 1 0 8
Velta (millj. kr.) 44 150
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 10,9 19,9
Akureyri 10 8 1 1 9
Velta (millj. kr.) 176 225
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 17,6 25,2
Árborgarsvæðið 3 0 3 0 4
Velta (millj. kr.) 66 87
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 22,1 19,7

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English