27.02.2013
Fjöldi útgefinna vegabréfa
Í janúar 2013 voru gefin út 2.423 íslensk vegabréf. Til samanburðar voru gefin út 2.766 vegabréf í janúar 2012. Fækkar því útgefnum vegabréfum um 12,4 % milli ára.
Þjóðskrá Íslands annast útgáfu vegabréfa auk nokkurra annarra skilríkja. Vakin er athygli á því að frá 1.mars 2013 verður gildistími vegabréfa lengdur úr fimm árum í tíu ár.
| Ár | Mánuður | Fjöldi |
|---|---|---|
| 2013 | janúar | 2423 |
| 2012 | desember | 1872 |
| 2012 | nóvember | 2524 |
| 2012 | október | 3365 |
| 2012 | september | 3527 |
| 2012 | ágúst | 4875 |
| 2012 | júlí | 6970 |
| 2012 | júní | 6932 |
| 2012 | maí | 6344 |
| 2012 | apríl | 4244 |
| 2012 | mars | 4024 |
| 2012 | febrúar | 3374 |
| 2012 | janúar | 2766 |
Smelltu hér til að skoða eldri gögn í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.