Úrræði sem íslensk sendiráð og ræðisskrifstofur hafa til að aðstoða íslenska ríkisborgara erlendis og eru án gilds vegabréfs.

Hægt er að sækja um vegabréf í eftirtöldum sendiráðum Íslands: í Kaupmannahöfn, Osló, Stokkhólmi, London, Berlín, Washington DC og í Peking.

Íslenskum sendiskrifstofum og kjörræðismönnum, sem heyra undir íslensku utanríkisþjónustuna, er heimilt að gefa út vegabréf til bráðabirgða (neyðarvegabréf) ef brýna nauðsyn ber til.

Öllum ræðismönnum hefur verið heimilað að framlengja gildistíma íslenskra vegabréfa og að sjálfsögðu geta öll íslensk sendiráð og fastanefndir einnig framlengt gildistíma vegabréfa.

Sjá nánar á vef utanríkisráðuneytisins.

Upplýsingar um íslenskar sendiskrifstofur: sendiráð, fastanefndir og ræðisskrifstofur á vef utanríkisráðuneytisins.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English