Til að skoða fasteignamat 2012 ferðu á island.is og smellir á Skoða fasteignamat á forsíðu.
Til að komast á Mínar síður auðkennir þú þig, annað hvort með rafrænum skilríkjum eða með aðalveflykli ríkisskattstjóra, sem þú getur fengið strax á skattur.is
Nánari upplýsingar um auðkenningu
Tilkynningaseðill fasteignamats 2012 birtist undir Skjölin mín á Mínum síðum.
Fasteignaeigendur geta einnig nálgast mat stakra eigna á skra.is með því að slá inn götuheiti eða haft samband við Þjóðskrá Íslands og óskað eftir því að fá fasteignamat sent með bréfpósti.