Fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum stendur til boða að nota nafnaskrá þjóðskrár vegna starfsemi sinnar. Sækja þarf um aðgang og gera samning við Þjóðskrá Íslands áður en gögn verða aðgengileg. Gjald fyrir rafræn afnot af nafnaskrá þjóðskrár er innheimt einu sinni á ári (árgjald).

Til að hafa fullt gagn af skránni þurfa notendur hennar að þekkja þau tákn sem koma fyrir í skránni. Táknmál þjóðskrár (pdf)  

Umsækjendur fylla út eyðublað og senda til Þjóðskrár Íslands. Á grundvelli umsóknar er gerður samningur um rafræn afnot nafnaskrár þjóðskrár og miðlarar annast afhendingu gagna í framhaldi af því.

Aðgangur að þjóðskrá er tvenns konar:

    1. Samningur um rafræn afnot af nafnaskrá þjóðskrár. Heildarskrá 1. desember ár hvert er afhent notanda og daglegar uppfærslur.
    2. Samningur um uppfletti í nafnaskrá þjóðskrár í lokuðu uppflettikerfi miðlara með aðgangsstýringu. 

Í báðum tilvikum þarf að fylla út umsókn og senda til Þjóðskrár Íslands áður en aðgangur er heimilaður.  

Eftirtalin fyrirtæki eru með miðlarasamning við Þjóðskrá Íslands:

Advania
Creditinfo
DK hugbúnaður ehf
Ferli ehf   
TM software
Þekking hf

Eyðublöð sérvinnslu þjóðskrár     

Gjaldskrá Þjóðskrár Íslands, gildir frá 1. janúar 2013

Fyrirtækjaskrá á vef ríkisskattstjóra  
 

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English