Hvar á ég að kjósa? - Flettu upp í kjörskránni á island.is

Þjóðskrá Íslands sér um gerð kjörskrárstofna sem eru grunnur fyrir kjörskrár sem sveitarfélögin gefa út. Á kjörskrárstofni eru allir íslenskir ríkisborgarar sem verða orðnir 18 ára á kjördag og eru skráðir með lögheimili í ákveðnu sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár á viðmiðunardegi kjörskrár. Það er því afar mikilvægt að skráning lögheimilis sé rétt á viðmiðunardag en af því ræðst í hvaða sveitarfélagi maður á að kjósa. Nánari upplýsingar um skilyrði kosningaréttar.

Þegar um er að ræða alþingiskosningar er viðmiðunardagur kjörskrár 5 vikum fyrir kjördag en fyrir aðrar kosningar, s.s. forseta-, sveitarstjórnar- og þjóðaratkvæðagreiðslur er viðmiðunardagurinn 3 vikum fyrir kjördag. 

Sveitarstjórn er við samningu kjörskrár bundin við skráningu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár á viðmiðunardag að því er varðar staðsetningu í sveitarfélag. Óheimilt er að breyta kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili hefur ekki borist Þjóðskrá Íslands.

Kosningavefur innanríkisráðuneytis  
Eyðublað vegna kjörskrár 

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English