Úr þjóðskrá eru unnin ýmis úrtök að hálfu Þjóðskrár Íslands eða fyrirtækja sem hafa heimild til úrtaksgerðar. Úrtök Þjóðskrár Íslands eru meðal annars íbúaskrár, kjörskrárstofnar, vottorð og sértækar vinnslur. Úrtök vegna til dæmis skoðanakannana eða markaðsrannsókna eru framkvæmd af fyrirtækjum sem hafa gert samning við Þjóðskrá Íslands um þessháttar vinnslur.

Hjá Þjóðskrá Íslands getur fólk undanþegið sig því að vera á úrtakslistum úr þjóðskrá vegna markaðssetningar. Til þess að svo verði er nóg að senda tölvupóst til Þjóðskrár með nafni og kennitölu.
Rannsóknir sem falla undir svokallaðar vísindarannsóknir eru undanskildar.
Reglur nr. 36/2005 um bannskrá þjóðskrár og 28. gr. laga um persónuvernd nr. 77/2000

Gjaldskrá Þjóðskrár Íslands, gildir frá 1. janúar 2013

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English