Sameiningakosning Húnabyggðar og Skagabyggðar
Hver er minn kjörstaður? Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá í sameiningakosningu Húnabyggðar og Skagabyggðar sem hefst 8. júní og lýkur 22. júní 2024.
Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn og lögheimili kjósanda ásamt sveitarfélagi. Þá birtast einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild.
Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili á viðmiðunardegi.
Athugasemdir varðandi kjörskrá má senda á kosningar@skra.is
Skrifaðu kennitöluna þína í reitinn hér fyrir neðan til að sjá hvar þú átt að kjósa:
Vinsamlegast sláðu inn kennitölu.
Hver hefur kosningarétt við forsetakjör?
- Íslenskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri þegar kosning fer fram og á lögheimili hér á landi
- Íslenskur ríkisborgari, sem náð hefur 18 ára aldri og hefur ÁTT lögheimili hér á landi á kosningarrétt í sextán ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu.
Eftir 16 ára búsetu erlendis skal sækja um til Þjóðskrár Íslands að vera tekinn á kjörskrá
- Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi, og hafa ekki fengið íslenskt ríkisfang, eru ekki með kosningarétt við forsetakjör.
Frekari upplýsingar um kosningarétt
Kosning utan kjörfundar
Ef kjósandi hefur ekki tök á að kjósa á sínum kjörstað þann 1. júní nk. er hægt að kjósa utan kjörfundar hjá sýslumönnum. Hér er hægt að sjá staðsetningar og opnunartíma sýslumanna.