Synjun á útgáfu vegabréfs

Þjóðskrá er heimilt að synja útgáfu vegabréfs vegna eftirtalinna atriða:

  • Einstaklingur hefur ekki íslenskt ríkisfang.
  • Umsækjandi er eftirlýstur af lögreglu, gefin hefur verið út handtökuskipun á hann, lagt á hann farbann og umsækjandi ekki afplánað dóma.
  • Samþykki forsjáraðila barns yngra en 18 ára vantar.
  • Samþykki lögráðamanns vantar fyrir vegabréfi handa einstaklingi sem hefur misst sjálfræði.
  • Umsækjandi getur ekki gert fullnægjandi grein fyrir sér eða veitt nauðsynlegar upplýsingar fyrir umsókn.