Framfærsluviðmið
Framfærsluviðmið
EES eða EFTA ríkisborgarar sem hyggjast sækja um lögheimilisskráningu á Íslandi þurfa að sýna fram á framfærslugetu í a.m.k. þrjá mánuði frá skráningardegi. Framfærsluupphæðin miðast við upphæð fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar.
- Mánaðarleg lágmarksframfærsla einstaklinga er 189.875 kr. Þriggja mánaða lágmarksframfærsla er því 569.625 kr. Launþegar þurfa að sýna fram á að þeir hafi a.m.k. 189.875 kr. í laun á mánuði í a.m.k. þrjá mánuði. Einstaklingar sem koma á eigin framfærslu þurfa að sýna að þeir eigi a.m.k. 569.625 kr. til að framfleyta sér.
- Samanlögð mánaðarleg lágmarksframfærsla hjóna er 284.813 kr. Þriggja mánaða lágmarksframfærsla er því 854.439 kr. Séu hjón launþegar, bæði eða annað þeirra, þá þurfa þau að vera með a.m.k. 284.813 kr. í samanlögð mánaðarlaun í a.m.k. þrjá mánuði. Hjón sem koma hingað til lands á eigin framfærslu þurfa að sýna að þau eigi samanlagt a.m.k. 854.439 kr. til að framfleyta sér.
- Sé um að ræða afkomanda á aldrinum 18-21 árs sem kemur hingað til lands og mun dvelja hjá foreldrum sínum, þá er mánaðarleg lágmarksframfærsla þeirra 94.938 kr. Þriggja mánaða lágmarksframfærsla er því 284.814. Sé einstaklingurinn alveg á framfæri foreldra sinna þá bætist fyrrgreind upphæð við framfærsluupphæð foreldranna. Framfærsluviðmið hækkar ekki sé um að ræða börn yngri en 18 ára.
- Sé um að ræða einstakling sem er eldri er 21 árs sem mun dvelja hjá ættingja sínum (einstaklingi) og vera á framfæri hans, þá er mánaðarleg lágmarksframfærsla ættingjans 349.855 kr. Þriggja mánaða lágmarksframfærslan er því 1.049.565 kr.
- Sé um að ræða einstakling sem er eldri er 21 árs sem mun dvelja hjá ættingjum sínum (hjón) og vera á framfæri þeirra, þá er mánaðarleg lágmarksframfærsla hjónanna 444.793 kr. Þriggja mánaða lágmarksframfærslan er því 1.334.379 kr.