Talnaefni vegna forsetakosninga 2016

Á kjörskrárstofnum þeim, sem ÞÍ hefur unnið vegna forsetakjörsins 25. júní 2016 eru 245.004 kjósendur og er fjöldi karla og kvenna svo til jafn. Konur eru 122.870 en karlar 122.134. Í endanlegri tölu kjósenda á kjörskrá, sem birt verður í skýrslu um kosningarnar, verður tekið tillit til tölu látinna og þeirra sem fá nýtt ríkisfang eftir að kjörskrárstofnar voru unnir, svo og breytinga sem verða á kjörskrá vegna leiðréttinga. Við forsetakjör 30. júní 2012 voru 235.743 kjósendur á kjörskrá og nemur fjölgunin 9.261 eða 3,9%.

Kjósendur með lögheimili erlendis eru 13.077 eða 5,3% kjósendatölunnar og hefur þeim fjölgað um 820 frá síðusta forsetakjöri eða um 6,7%. Kjósendum með lögheimili hér á landi fjölgar um 8.441 eða 3,8%. Þeir sem vegna aldurs fá nú að kjósa í fyrsta sinn við forsetakjör eru 17.822 eða 7,3% af kjósendatölunni. 

Kjörskrárstofn í tölum vegna forsetakosninga 2016
Kosningavefur innanríkisráðuneytis

Vakin er athygli á því að Hagstofa Íslands gefur út endanlegar kosningaskýrslur. Tölulegar upplýsingar í kjörskrárstofni endurspegla ekki endanlega kjörskrá.