Þjóðskrá07. janúar 2015

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í desember 2014

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í desember 2014 var 457. Heildarvelta nam 18,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 40,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 12,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 3,8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,6 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í desember 2014 var 457. Heildarvelta nam 18,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 40,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 12,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 3,8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,6 milljörðum króna.

Þegar desember 2014 er borinn saman við nóvember 2014 fækkar kaupsamningum um 23,6% og velta minnkar um 27,1%. Í nóvember 2014 var 598 kaupsamningum þinglýst, velta nam 25,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 42,5 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 16 í desember 2014 eða 3,8% af öllum samningum. Í nóvember 2014 voru makaskiptasamningar 29 eða 5,2% af öllum samningum. Í desember 2013 voru makaskiptasamningar 28 eða 6,4% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Þegar desember 2014 er borinn saman við desember 2013 fækkar kaupsamningum um 3,8% og velta eykst um 5,2%. Í desember 2013 var 475 kaupsamningum þinglýst, velta nam 17,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 37,1 milljón króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Tafla 1. Samanburður á nóvember 2014 og desember 2014

Nóvember 2014

Desember 2014

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

13.065

439

12.141

347

-7,1%

-21,0%

Sérbýli

6.125

117

3.830

79

-37,5%

-32,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

6.218

42

2.554

31

-58,9%

-26,2%

Samtals

25.408

598

18.525

457

-27,1%

-23,6%

 

 

Tafla 2. Samanburður á desember 2013 og desember 2014

Desember 2013

Desember 2014

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

10.758

351

12.141

347

12,9%

-1,1%

Sérbýli

5.116

89

3.830

79

-25,1%

-11,2%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.729

35

2.554

31

47,7%

-11,4%

Samtals

17.603

475

18.525

457

5,2%

-3,8%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)
 
Desember 2013
Nóvember 2014
Desember 2014
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
440
556
426
-3,2%
-23,4%
Makaskipti eða lausafé
29
29
17
-41,4%
-41,4%
Makaskipti
28
29
16
-42,9%
-44,8%
Lausafé
1
0
1
-
-
Hlutfall makaskipta
6,4%
5,2%
3,8%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar