Þjóðskrá29. júní 2015

Velta á markaði 19.júní - 25.júní 2015

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 19. júní til og með 25. júní 2015 var 159. Þar af voru 120 samningar um eignir í fjölbýli, 31 samningur um sérbýli og 8 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 5.970 milljónir króna og meðalupphæð á samning 37,5 milljónir króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 19. júní til og með 25. júní 2015 var 159. Þar af voru 120 samningar um eignir í fjölbýli, 31 samningur um sérbýli og 8 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 5.970 milljónir króna og meðalupphæð á samning 37,5 milljónir króna.

Á sama tíma var 20 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 11 samningar um eignir í fjölbýli, 7 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 371 milljón króna og meðalupphæð á samning 18,6 milljónir króna.

Á sama tíma var 11 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli og 4 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 317 milljónir króna og meðalupphæð á samning 28,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 16 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 266 milljónir króna og meðalupphæð á samning 16,6 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 19. júní til og með 25. júní
Svæði Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 87 72 10 5 13
Seltjarnarnes 2 1 1 0 0
Mosfellsbær 9 3 5 1 2
Kópavogur 34 28 5 1 4
Hafnarfjörður 15 10 4 1 2
Garðabær 12 6 6 0 1
Samtals 159 120 31 8 22
Velta (millj. kr.) 5.970 825
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 37,5 37,5
Suðurnes 20 11 7 2 13
Velta (millj. kr.) 371 265
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 18,6 19,7
Akureyri 11 7 4 0 14
Velta (millj. kr.) 317 403
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 28,8 28,9
Árborgarsvæðið 16 3 10 3 11
Velta (millj. kr.) 266 226
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 16,6 20,7

 

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar