Þjóðskrá08. júlí 2015

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í júní 2015

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júní 2015 var 336. Heildarvelta nam 12,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 37,4 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 8,5 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 3,1 milljarði og viðskipti með aðrar eignir 1 milljarði króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júní 2015 var 336. Heildarvelta nam 12,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 37,4 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 8,5 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 3,1 milljarði og viðskipti með aðrar eignir 1 milljarði króna.

Makaskiptasamningar voru 7 í júní 2015 eða 2,2% af öllum samningum. Í júní 2014 voru makaskiptasamningar 13 eða 2,6% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Þegar júní 2015 er borinn saman við júní 2014 fækkar kaupsamningum um 36,7% og velta minnkar um 32,6%. Vert er að benda á að verkfalli lögfræðinga hjá Sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu lauk ekki fyrr en 15. júní og því engum kaupsamningum þinglýst fyrri hluta mánaðarins.  Í júní 2014 var 531 kaupsamningi þinglýst, velta nam 18,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 35,1 milljón króna.

Vegna verkfallsins var engum kaupsamningum þinglýst í maí 2015 og því ekki hægt að bera þann mánuð saman við júní 2015.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Tafla 1. Samanburður á júní 2014 og júní 2015

Júní 2014

Júní 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

12.786

396

8.472

254

-33,7%

-35,9%

Sérbýli

5.010

104

3.114

63

-37,8%

-39,4%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

852

31

988

19

15,9%

-38,7%

Samtals

18.649

531

12.574

336

-32,6%

-36,7%

 
Tafla 2. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)
 
Júní 2014
Maí 2015
Júní 2015
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
500
0
317
-36,6%
-
Makaskipti eða lausafé
13
0
8
-38,5%
-
Makaskipti
13
0
7
-46,2%
-
Lausafé
0
0
1
-
-
Hlutfall makaskipta
2,6%
-
2,2%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar