Þjóðskrá10. júlí 2015

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild 2. ársfjórðungur 2015

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningum einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- og/eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. apríl til 30. júní 2015. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrá Íslands. Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningum einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- og/eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. apríl til 30. júní 2015. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrá Íslands. Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að  skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þann 13. febrúar 2013 tóku gildi breytingar á lögum um skráð trúfélög nr. 108/1999, (lífsskoðunarfélög, aðild barna að skráðum trú- eða  lífsskoðunarfélögum o.fl.).  Þessar lagabreytingar miðuðu að því að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga á við stöðu skráðra trúfélaga. Á vef innanríkisráðuneytisins er að finna lista yfir skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Verklag við skráningu á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild var breytt í kjölfar gildistöku lagabreytinganna sem m.a. hafði þau áhrif að einstaklingum með stöðuna ótilgreint trú- eða lífsskoðunarfélag hefur fjölgað. Meginbreytingin var að börn eru nú skráð í ótilgreint trúfélag við fæðingu ef foreldrar sem fara  sameiginlega með forsjá eru í sitthvoru trú- eða lífskoðunarfélaginu. Jafnframt er skráning erlends ríkisborgara úr stöðunni ótilgreint í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag á grundvelli tilkynningar frá honum nú talin til breytinga.

Hér fylgja nokkrar töflur með greiningu á breytingum sem hafa orðið á tímabilinu.

Úr Þjóðkirkjunni gengu 440 fleiri en í hana á tímabilinu. Í fríkirkjurnar þrjár gengu 89 fleiri en úr þeim og 221 fleiri í önnur trúfélög en úr þeim. Í lífsskoðunarfélagið Siðmennt gengu 43 fleiri en úr því. Nýskráðir utan félaga voru 275 fleiri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga og í ótilgreint trúfélag voru 188 færri skráðir en fluttust úr þeim flokki.

Breytingar á félagsaðild skráðar frá og með 1. apríl  til 30. júní 2015

Fyrri félagsaðild
Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1104 598 60 129 10 90 217
Þjóðkirkjan 158 28 48 15 67
Fríkirkjur 149 124 4 7 6 8
Önnur skráð trúfélög 350 122 9 33 10 46 130
Lífsskoðunarfélög 53 27 2 1 20 3
Utan trúfélaga 365 306 15 35 9
Ótilgreint 29 19 2 5 3

Miðað er við vinnsludag.
Fríkirkjur: Fríkirkjan í Reykjavík, Óháði söfnuðurinn í Reykjavík, Fríkirkjan í Hafnarfirði.

Til þess að taka dæmi úr töflunni hér fyrir ofan þýða tölurnar að alls gengu 598 úr þjóðkirkjunni á tímabilinu 1. apríl til 30. júní 2015. Af þeim 598 sem gengu úr þjóðkirkjunni skráðu 124 sig í fríkirkjur. Á sama tíma gengu 158 í þjóðkirkjuna, þar af voru 28 áður í fríkirkjum.

Eftirfarandi töflur eru yfirlit um fjölda þeirra sem skiptu um trú- eða lífsskoðunarfélag á 2. ársfjórðungi 2015, annars vegar eftir því í hvaða félag þeir gengu og hinsvegar úr hvaða félagi þeir komu.

Flokkað eftir kyni

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 592 83 56 217 19 196 21
Konur 512 75 93 133 34 169 8
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 592 321 32 64 10 50 115
Konur 512 277 28 65 40 102

Flokkað eftir fæðingarári

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 950 90 115 310 52 354
1940 og fyrr 4 2 1 1
1941-1945 7 2 2 2 1
1946-1950 12 2 4 4 1 1
1951-1955 25 8 3 7 3 4
1956-1960 28 5 9 6 6 2
1961-1965 40 9 1 18 1 10 1
1966-1970 38 4 9 14 1 8 2
1971-1975 77 7 13 26 4 24 3
1976-1980 117 11 9 47 9 38 3
1981-1985 139 12 22 43 10 47 5
1986-1990 183 13 17 67 13 68 5
1991-1995 185 6 6 51 8 108 6
1996 - 2000 50 1 13 2 33 1
2001 -2005 45 11 19 11 4
2006-2010 30 3 9 15 3
2011 og síðar 124 65 25 25 1 8
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1104 598 60 129 10 90
1940 og fyrr 4 3 1
1941-1945 7 2 2 3
1946-1950 12 8 1 1 1 1
1951-1955 25 14 5 4 2
1956-1960 28 18 1 6 2 1
1961-1965 40 13 4 9 1 8 5
1966-1970 38 21 4 8 1 4
1971-1975 77 44 7 13 1 3 9
1976-1980 117 55 8 16 1 12 25
1981-1985 139 80 8 15 4 18 14
1986-1990 183 101 6 16 25 35
1991-1995 185 138 4 18 9 16
1996 - 2000 50 42 2 4 1 1
2001 -2005 45 25 4 8 4 4
2006-2010 30 14 1 3 12
2011 og síðar 124 20 3 7 3 91

Höfuðborgarsvæðið: Reykjavík, Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Kjósarhreppur.

Smelltu hér til þess að skoða gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar