Þjóðskrá09. október 2015

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild 3. ársfjórðungur 2015

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningum einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- og/eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. júlí til 30. september 2015. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrá Íslands. Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningum einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- og/eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. júlí til 30. september 2015. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrá Íslands. Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að  skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þann 13. febrúar 2013 tóku gildi breytingar á lögum um skráð trúfélög nr. 108/1999, (lífsskoðunarfélög, aðild barna að skráðum trú- eða  lífsskoðunarfélögum o.fl.).  Þessar lagabreytingar miðuðu að því að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga á við stöðu skráðra trúfélaga. Á vef innanríkisráðuneytisins er að finna lista yfir skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Verklag við skráningu á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild var breytt í kjölfar gildistöku lagabreytinganna sem m.a. hafði þau áhrif að einstaklingum með stöðuna ótilgreint trú- eða lífsskoðunarfélag hefur fjölgað. Meginbreytingin var að börn eru nú skráð í ótilgreint trúfélag við fæðingu ef foreldrar sem fara  sameiginlega með forsjá eru í sitthvoru trú- eða lífskoðunarfélaginu. Jafnframt er skráning erlends ríkisborgara úr stöðunni ótilgreint í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag á grundvelli tilkynningar frá honum nú talin til breytinga.

Hér fylgja nokkrar töflur með greiningu á breytingum sem hafa orðið á tímabilinu.

Úr Þjóðkirkjunni gengu 695 fleiri en í hana á tímabilinu. Í fríkirkjurnar þrjár gengu 15 fleiri en úr þeim og 198 fleiri í önnur trúfélög en úr þeim. Í lífsskoðunarfélagið Siðmennt gengu 74 fleiri en úr því. Nýskráðir utan félaga voru 598 fleiri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga og í ótilgreint trúfélag voru 190 færri skráðir en fluttust úr þeim flokki.

Breytingar á félagsaðild skráðar frá og með 1. júlí  til 30. september 2015

Fyrri félagsaðild
Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1423 855 95 157 2 72 242
Þjóðkirkjan 160 26 56 22 56
Fríkirkjur 110 81 1 12 4 12
Önnur skráð trúfélög 355 129 7 35 1 24 159
Lífsskoðunarfélög 76 38 8 5 20 5
Utan trúfélaga 670 567 53 40 10
Ótilgreint 52 40 9 1 2

Miðað er við vinnsludag.
Fríkirkjur: Fríkirkjan í Reykjavík, Óháði söfnuðurinn í Reykjavík, Fríkirkjan í Hafnarfirði.

Til þess að taka dæmi úr töflunni hér fyrir ofan þýða tölurnar að alls gengu 855 úr þjóðkirkjunni á tímabilinu 1. júlí til 30. september 2015. Af þeim 855 sem gengu úr þjóðkirkjunni skráðu 81 sig í fríkirkjur. Á sama tíma gengu 160 í þjóðkirkjuna, þar af voru 26 áður í fríkirkjum.

Eftirfarandi töflur eru yfirlit um fjölda þeirra sem skiptu um trú- eða lífsskoðunarfélag á 3. ársfjórðungi 2015, annars vegar eftir því í hvaða félag þeir gengu og hinsvegar úr hvaða félagi þeir komu.

Flokkað eftir kyni

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 768 79 47 182 41 399 20
Konur 655 81 63 173 35 271 32
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 768 486 50 80 37 115
Konur 655 369 45 77 2 35 127

Flokkað eftir fæðingarári

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1272 95 82 306 72 666
1940 og fyrr 4 2 1 1
1941-1945 8 3 3 1 1
1946-1950 11 3 7 1
1951-1955 23 4 2 5 2 9 1
1956-1960 34 10 2 6 1 15
1961-1965 42 5 1 16 5 14 1
1966-1970 53 3 6 18 5 17 4
1971-1975 70 8 5 16 11 29 1
1976-1980 132 14 15 34 12 55 2
1981-1985 201 19 21 58 14 82 7
1986-1990 289 9 21 82 7 150 20
1991-1995 289 6 3 46 11 213 10
1996 - 2000 97 2 10 3 77 5
2001 -2005 19 7 3 6 3
2006-2010 34 4 9 16 3 2
2011 og síðar 117 61 19 33 1 2 1
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1423 855 95 157 2 72
1940 og fyrr 4 1 1 2
1941-1945 8 4 4
1946-1950 11 2 2 5 2
1951-1955 23 12 1 5 2 3
1956-1960 34 16 5 10 1 2
1961-1965 42 17 3 13 6 3
1966-1970 53 28 7 6 4 8
1971-1975 70 35 5 14 8 8
1976-1980 132 70 19 12 12 19
1981-1985 201 128 14 16 13 30
1986-1990 289 199 14 28 10 38
1991-1995 289 239 11 18 1 6 14
1996 - 2000 97 80 6 7 1 3
2001 -2005 19 3 3 9 1 3
2006-2010 34 11 2 5 16
2011 og síðar 117 10 3 4 1 4 95

Höfuðborgarsvæðið: Reykjavík, Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Kjósarhreppur.

Smelltu hér til þess að skoða gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar