Þjóðskrá02. nóvember 2015

Velta á markaði 23.okt - 29.okt 2015

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 23. október til og með 29. október 2015 var 39. Þar af voru 29 samningar um eignir í fjölbýli, 6 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.474 milljónir króna og meðalupphæð á samning 37,8 milljónir króna.

Vegna verkfalla starfsmanna SFR hjá sýslumannsembættum varð töf á móttöku nýrra samninga.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 23. október til og með 29. október 2015 var 39. Þar af voru 29 samningar um eignir í fjölbýli, 6 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.474 milljónir króna og meðalupphæð á samning 37,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli og 8 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 279 milljónir króna og meðalupphæð á samning 23,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 9 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 5 samningar um eignir í fjölbýli og 4 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 267 milljónir króna og meðalupphæð á samning 29,6 milljónir króna.

Á sama tíma var 2 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Það voru samningar um sérbýli. Heildarveltan var 19 milljónir króna og meðalupphæð á samning 9,6 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 23. október til og með 29. október
Svæði Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 21 16 3 2 106
Seltjarnarnes 1 1 0 0 3
Mosfellsbær 1 1 0 0 11
Kópavogur 8 7 1 0 34
Hafnarfjörður 6 4 0 2 27
Garðabær 2 0 2 0 14
Samtals 39 29 6 4 195
Velta (millj. kr.) 1.474 7.622
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 37,8 39
Suðurnes 12 4 8 0 16
Velta (millj. kr.) 279 347
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 23,2 22,3
Akureyri 9 5 4 0 12
Velta (millj. kr.) 267 311
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 29,6 26,7
Árborgarsvæðið 2 0 2 0 10
Velta (millj. kr.) 19 223
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 9,6 21,8

 

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar