Þjóðskrá04. nóvember 2015

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í október 2015

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í október 2015 var 818. Heildarvelta nam 31,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 38,1 milljón króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 21,4 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,1 milljarði króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í október 2015 var 818. Heildarvelta nam 31,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 38,1 milljón króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 21,4 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,1 milljarði króna.

Þegar október 2015 er borinn saman við september 2015 fækkar kaupsamningum um 6,5% og velta minnkar um 13,9%. Í september 2015 var 875 kaupsamningum þinglýst, velta nam 36,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 41,4 milljónir króna.

Þegar október 2015 er borinn saman við október 2014 fjölgar kaupsamningum um 48,2% og velta eykst um 66,1%. Í október 2014 var 552 kaupsamningum þinglýst, velta nam 18,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 34 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 17 í október 2015 eða 2,3% af öllum samningum. Í september 2015 voru makaskiptasamningar 16 eða 2% af öllum samningum. Í október 2014 voru makaskiptasamningar 22 eða 4,3% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á september 2015 og október 2015

September 2015

Október 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.108

663

21.404

605

-3,2%

-8,7%

Sérbýli

7.948

152

7.669

134

-3,5%

-11,8%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

6.161

60

2.093

79

-66,0%

31,7%

Samtals

36.216

875

31.166

818

-13,9%

-6,5%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á október 2014 og október 2015

Október 2014

Október 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

11.966

408

21.404

605

78,9%

48,3%

Sérbýli

4.844

99

7.669

134

58,3%

35,4%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.959

45

2.093

79

6,9%

75,6%

Samtals

18.769

552

31.166

818

66,1%

48,2%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Október 2014
September 2015
Október 2015
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
507
815
739
45,8%
-9,3%
Makaskipti eða lausafé
22
17
19
-13,6%
11,8%
Makaskipti
22
16
17
-22,7%
6,3%
Lausafé
0
2
2
-
-
Hlutfall makaskipta
4,3%
2,0%
2,3%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar