Þjóðskrá18. nóvember 2015

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í október 2015

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 146,5 stig í október 2015 (janúar 2011=100) og hækkar um 3,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 4,5% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 146,5 stig í október 2015 (janúar 2011=100) og hækkar um 3,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 4,5% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í október 2015.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár er 621 samningur, sem þinglýst var í október 2015. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í október 2015 eru því unnar upp úr 395 leigusamningum sem þinglýst var í október 2015.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í október 2015 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

2330

2667

2127

1767

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3068

2506

1711

1862

Kópavogur

-

2091

1882

1679

Garðabær og Hafnarfjörður

3128

2380

1872

1460

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2268

1882

1604

Breiðholt

-

2176

1805

1518

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

-

-

Suðurnes

-

1610

1257

960

Vesturland

-

-

1278

1054

Vestfirðir

-

1253

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

903

1256

759

Akureyri

-

1805

1566

1371

Austurland

-

1512

1090

1238

Suðurland

-

1362

1285

995

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar