Þjóðskrá02. desember 2015

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í nóvember 2015

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu í nóvember 2015 var 757. Heildarvelta nam 28,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 38,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 18,5 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8,2 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,1 milljarði króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu í nóvember 2015 var 757. Heildarvelta nam 28,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 38,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 18,5 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8,2 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,1 milljarði króna.

Þegar nóvember 2015 er borinn saman við október 2015 fækkar kaupsamningum um 7,5% og velta minnkar um 7,3%. Í október 2015 var 818 kaupsamningum þinglýst, velta nam 31,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 38,1 milljón króna.

Makaskiptasamningar voru 20 í nóvember 2015 eða 2,8% af öllum samningum. Í október 2015 voru makaskiptasamningar 17 eða 2,3% af öllum samningum. Í nóvember 2014 voru makaskiptasamningar 29 eða 5,2% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Þegar nóvember 2015 er borinn saman við nóvember 2014 fjölgar kaupsamningum um 26,6% og velta eykst um 13,7%. Í nóvember 2014 var 598 kaupsamningum þinglýst, velta nam 25,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 42,5 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á október 2015 og nóvember 2015

Október 2015

Nóvember 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

21.404

605

18.526

549

-13,4%

-9,3%

Sérbýli

7.669

134

8.238

154

7,4%

14,9%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.093

79

2.127

54

1,6%

-31,6%

Samtals

31.166

818

28.892

757

-7,3%

-7,5%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á nóvember 2014 og nóvember 2015

Nóvember 2014

Nóvember 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

13.065

439

18.526

549

41,8%

25,1%

Sérbýli

6.125

117

8.238

154

34,5%

31,6%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

6.218

42

2.127

54

-65,8%

28,6%

Samtals

25.408

598

28.892

757

13,7%

26,6%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Nóvember 2014
Október 2015
Nóvember 2015
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
556
739
703
26,4%
-4,9%
Makaskipti eða lausafé
29
19
21
-27,6%
10,5%
Makaskipti
29
17
20
-31%
17,6%
Lausafé
0
2
1
-
-
Hlutfall makaskipta
5,2%
2,3%
2,8%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar