Þjóðskrá18. desember 2015

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í nóvember 2015

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 147,8 stig í nóvember 2015 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,9% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 4,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 147,8 stig í nóvember 2015 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,9% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 4,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í nóvember 2015.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár er 761 samningur, sem þinglýst var í nóvember 2015. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í nóvember 2015 eru því unnar upp úr 486 leigusamningum sem þinglýst var í nóvember 2015.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í nóvember 2015 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3732

2401

2258

1909

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

2335

2474

2011

1738

Kópavogur

2403

2307

2004

1644

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2157

1742

1487

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

2959

2059

2006

1709

Breiðholt

-

2048

1992

1634

Kjalarnes og Mosfellsbær

2488

-

-

1519

Suðurnes

-

1688

1439

1137

Vesturland

-

-

1290

1148

Vestfirðir

-

-

-

748

Norðurland nema Akureyri

-

-

1392

825

Akureyri

-

1805

1558

1396

Austurland

-

-

1465

-

Suðurland

-

1739

1285

994

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar