Þjóðskrá08. janúar 2016

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild 4. ársfjórðungur 2015

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningum einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- og/eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. október til 31. desember 2015. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrá Íslands. Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningum einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- og/eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. október til 31. desember 2015. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrá Íslands. Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að  skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þann 13. febrúar 2013 tóku gildi breytingar á lögum um skráð trúfélög nr. 108/1999, (lífsskoðunarfélög, aðild barna að skráðum trú- eða  lífsskoðunarfélögum o.fl.).  Þessar lagabreytingar miðuðu að því að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga á við stöðu skráðra trúfélaga. Á vef innanríkisráðuneytisins er að finna lista yfir skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Verklag við skráningu á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild var breytt í kjölfar gildistöku lagabreytinganna sem m.a. hafði þau áhrif að einstaklingum með stöðuna ótilgreint trú- eða lífsskoðunarfélag hefur fjölgað. Meginbreytingin var að börn eru nú skráð í ótilgreint trúfélag við fæðingu ef foreldrar sem fara  sameiginlega með forsjá eru í sitthvoru trú- eða lífskoðunarfélaginu. Jafnframt er skráning erlends ríkisborgara úr stöðunni ótilgreint í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag á grundvelli tilkynningar frá honum nú talin til breytinga. Sjá nánar upplýsingar um lagabreytingar

Úr Þjóðkirkjunni gengu 2412 fleiri en í hana á tímabilinu. Í fríkirkjurnar þrjár gengu 10 færri en úr þeim og 3420 fleiri í önnur trúfélög en úr þeim. Í lífsskoðunarfélagið Siðmennt gengu 246 fleiri en úr því. Nýskráðir utan félaga voru 830 færri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga og í ótilgreint trúfélag voru 414 færri skráðir en fluttust úr þeim flokki.

Vegna mikilla breytinga á skráningu varðandi trúfélagið Zuism fylgja hér tölur varðandi það á skráningartímabilinu:

Gengið í Félagið Gengið úr félaginu
Alls 3176 70
Þjóðkirkjan 1053 17
Fríkirkjur 127 5
Önnur trúfélög 166 4
Lífsskoðunarfélög 100 8
Utan trúfélaga 1652 34
Ótilgreint 78 2

 

Hér fylgja nokkrar töflur með greiningu á breytingum sem hafa orðið á tímabilinu.

Breytingar á félagsaðild skráðar frá og með 1. október  til 31. desember 2015

Fyrri félagsaðild
Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 5791 2587 261 460 106 1866 511
Þjóðkirkjan 175 32 54 29 60
Fríkirkjur 251 192 6 21 3 11 18
Önnur skráð trúfélög 3880 1256 148 262 101 1707 406
Lífsskoðunarfélög 352 189 20 22 115 6
Utan trúfélaga 1036 868 53 92 2 21
Ótilgreint 97 82 2 9 4

Miðað er við vinnsludag.
Fríkirkjur: Fríkirkjan í Reykjavík, Óháði söfnuðurinn í Reykjavík, Fríkirkjan í Hafnarfirði.

Til þess að taka dæmi úr töflunni hér fyrir ofan þýða tölurnar að alls gengu 2587 úr þjóðkirkjunni á tímabilinu 1. október til 31. desember 2015. Af þeim 2587 sem gengu úr þjóðkirkjunni skráðu 192 sig í fríkirkjur. Á sama tíma gengu 175 í þjóðkirkjuna, þar af voru 32 áður í fríkirkjum.

Eftirfarandi töflur eru yfirlit um fjölda þeirra sem skiptu um trú- eða lífsskoðunarfélag á 4. ársfjórðungi 2015, annars vegar eftir því í hvaða félag þeir gengu og hinsvegar úr hvaða félagi þeir komu.

Flokkað eftir kyni

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 3639 87 113 2593 188 607 51
Konur 2152 88 138 1287 164 429 46
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 3639 1616 150 269 68 1281 255
Konur 2152 971 111 191 38 585 256

 

Flokkað eftir fæðingarári

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 5565 113 204 3778 349 1026
1940 og fyrr 16 5 1 2 5 2 1
1941-1945 25 1 10 8 3 3
1946-1950 47 4 8 20 4 10 1
1951-1955 89 5 10 53 6 15
1956-1960 139 5 10 82 15 26 1
1961-1965 197 7 19 104 27 40
1966-1970 188 6 14 119 19 29 1
1971-1975 298 15 14 173 43 48 5
1976-1980 506 16 29 319 40 93 9
1981-1985 794 11 26 564 54 130 9
1986-1990 1334 13 21 1017 63 194 26
1991-1995 1452 12 13 1014 52 329 32
1996 - 2000 418 5 5 279 14 105 10
2001 -2005 62 8 24 24 4 2
2006-2010 64 2 17 40 1 2 2
2011 og síðar 162 60 30 62 2 8
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 5791 2587 261 460 106 1866
1940 og fyrr 16 5 1 6 4
1941-1945 25 12 2 3 1 7
1946-1950 47 23 2 4 15 3
1951-1955 89 35 10 10 28 6
1956-1960 139 60 12 19 1 41 6
1961-1965 197 87 18 18 4 60 10
1966-1970 188 84 9 16 8 54 17
1971-1975 298 111 25 30 6 98 28
1976-1980 506 184 31 48 6 182 55
1981-1985 794 282 31 79 17 322 63
1986-1990 1334 590 43 81 31 501 88
1991-1995 1452 764 51 91 23 467 56
1996 - 2000 418 273 18 25 7 80 15
2001 -2005 62 31 2 10 1 1 17
2006-2010 64 20 3 11 1 1 28
2011 og síðar 162 26 3 9 5 119

Höfuðborgarsvæðið: Reykjavík, Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Kjósarhreppur.

Smelltu hér til þess að skoða gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar