Þjóðskrá20. janúar 2016

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í desember 2015

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 149 stig í desember 2015 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 4,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,9%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 149 stig í desember 2015 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 4,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,9%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í desember 2015.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 573 samningar, sem þinglýst var í desember 2015. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í desember 2015 eru því unnar upp úr 374 leigusamningum sem þinglýst var í desember 2015.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í desember 2015 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3477

2329

2234

2051

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3025

2433

1911

1720

Kópavogur

-

2162

1913

1637

Garðabær og Hafnarfjörður

-

1960

1923

1661

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2162

1865

1938

Breiðholt

-

2248

2087

-

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

-

-

Suðurnes

-

1569

1349

1191

Vesturland

-

1444

1282

1219

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

845

-

Akureyri

-

1855

1613

1216

Austurland

-

853

-

1191

Suðurland

-

1550

1182

1225

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar