Þjóðskrá18. mars 2016

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í febrúar 2016

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 147,6 stig í febrúar 2016 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 4,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 147,6 stig í febrúar 2016 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 4,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í febrúar 2016.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 681 samningur, sem þinglýst var í febrúar 2016. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í febrúar 2016 eru því unnar upp úr 429 leigusamningum sem þinglýst var í febrúar 2016.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í febrúar 2016 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

5413

2796

2486

1733

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

2503

2381

1849

1835

Kópavogur

-

2255

1866

1833

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2458

1867

1469

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2198

1896

1586

Breiðholt

-

2213

1813

1868

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

1852

1821

1516

Suðurnes

-

1701

1458

1104

Vesturland

-

1356

1407

1161

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

903

1034

Akureyri

-

1831

1724

1457

Austurland

-

-

1355

-

Suðurland

-

1669

1433

973

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar