Þjóðskrá18. maí 2016

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í apríl 2016

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 153,7 stig í apríl 2016 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,9% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 5,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 7,4%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 153,7 stig í apríl 2016 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,9% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 5,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 7,4%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í apríl 2016.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 583 samningar, sem þinglýst var í apríl 2016. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í apríl 2016 eru því unnar upp úr 406 leigusamningum sem þinglýst var í apríl 2016.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í apríl 2016 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3695

2669

2312

1663

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3200

2366

1947

1826

Kópavogur

2374

2571

1956

1636

Garðabær og Hafnarfjörður

3121

2243

1889

1635

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2159

1965

1923

Breiðholt

-

2133

1944

2337

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

2379

1998

-

Suðurnes

-

1528

1449

1519

Vesturland

-

1325

1315

1093

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

1243

1057

-

Akureyri

-

1971

1696

-

Austurland

-

-

-

-

Suðurland

-

1671

1496

1039

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar