Þjóðskrá20. júní 2016

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í maí 2016

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 152,5 stig í maí 2016 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,1%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 152,5 stig í maí 2016 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,1%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í maí 2016.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 605 samningar, sem þinglýst var í maí 2016. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í maí 2016 eru því unnar upp úr 394 leigusamningum sem þinglýst var í maí 2016.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í maí 2016 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

2607

2697

2112

1921

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3771

2454

2228

1706

Kópavogur

-

2191

1702

1878

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2228

1824

1611

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2092

1793

1640

Breiðholt

-

2243

1667

1496

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

-

1459

Suðurnes

-

1706

1409

1226

Vesturland

-

1515

1340

1181

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

1621

769

Akureyri

-

1903

1562

1472

Austurland

-

1410

1353

858

Suðurland

-

1579

1371

1100

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar