Þjóðskrá23. júní 2016

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í maí 2016

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í maí 2016 var 68 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 4.024 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 28 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Á sama tíma var 46 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 892 milljónir króna.

Á sama tíma var 41 kaupsamningur um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráður í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 2.661 milljón króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.652 milljónir króna. Af þessum samningum voru 19 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma voru 20 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 426 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 274 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar