Þjóðskrá03. ágúst 2016

Ávöxtun af leigu á íbúðarhúsnæði 2015 - 2016

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um ávöxtun af útleigu á íbúðarhúsnæði eftir staðsetningu og herbergjafjölda fasteigna. Ársávöxtun leiguhúsnæðis er reiknuð sem hlutfall af ársleigu (12*mánaðarleiga), fengna úr þinglýstum samningum og fasteignamati íbúðar fyrir árið 2017.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um ávöxtun af útleigu á íbúðarhúsnæði eftir staðsetningu og herbergjafjölda fasteigna. Ársávöxtun leiguhúsnæðis er reiknuð sem hlutfall af ársleigu (12*mánaðarleiga), fengna úr þinglýstum samningum og fasteignamati íbúðar fyrir árið 2017.

Við úrvinnsluna var m.a. sleppt samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur og samningum um félagslegar íbúðir. Einnig þarf samningurinn að vera um alla fasteignina. Úrvinnslan byggist því á 5.689 samningum sem þinglýst var á tímabilinu 30.júní 2015 til og með 31.júlí 2016 og fasteignamati 2017. Ávöxtunin tekur ekki tillit til breytinga á fasteignaverði sem getur verið mismunandi eftir svæðum.

Eftirfarandi töflur sýna ávöxtun af íbúðarhúsnæði fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu þar sem leigusali er einstaklingur, fyrirtæki eða fjármálastofnun. Til að gæta áreiðanleika niðurstaðna var ekki reiknuð ávöxtun þar sem leigusamningar voru færri en fimm innan stærðarflokks.


Ávöxtun af útleigu íbúðarhúsnæðis þar sem leigusali er einstaklingur
Svæði Stúdíó íbúð 2.herbergja 3.herbergja 4.-5 herbergja
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes 6,7% 6,7% 6,4% 5,9%
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 7,3% 7,3% 6,7% 6,5%
Kópavogur 4,5% 6,9% 6,8% 6,6%
Garðabær og Hafnarfjörður  9,3% 7,0% 6,9% 6,4%
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur 6,8% 7,5% 6,8% 6,8%
Breiðholt 6,6% 8,0% 7,5% 7,5%
Kjalarnes og Mosfellsbær 5,5% 6,0% 6,4%
Suðurnes nema Reykjanesbær 9,9% 9,1%
Reykjanesbær 10,5% 10,2% 8,2%
Vesturland nema Akranes 10,8% 8,2% 7,6%
Akranes 9,2% 9,0% 8,8%
Vestfirðir 12,4% 10,3%
Norðurland nema Akureyri 12,7% 11,4% 10,6%
Akureyri 9,0% 8,5% 8,1%
Austurland 9,5% 9,2% 9,3%
Suðurland nema Selfoss 9,7% 8,3% 8,2%
Selfoss 8,8% 8,0% 7,9%
Vestmannaeyjar 11,6% 8,6% 6,6%
Ávöxtun af útleigu íbúðarhúsnæðis þar sem leigusali er fyrirtæki (ekki fjármálastofnanir)
Svæði Stúdíó íbúð 2.herbergja 3.herbergja 4.-5 herbergja
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes 8,3% 7,0% 6,5% 6,0%
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 7,6% 6,7% 6,5%
Kópavogur 7,4% 7,8% 7,0% 6,7%
Garðabær og Hafnarfjörður  8,3% 7,2% 6,7%
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur 8,3% 7,6% 7,1% 6,9%
Breiðholt 11,7% 8,8% 8,7% 7,9%
Kjalarnes og Mosfellsbær 8,5% 7,7% 6,4%
Suðurnes nema Reykjanesbær 10,6% 9,7% 10,3%
Reykjanesbær 9,8% 9,9% 8,9%
Vesturland nema Akranes 8,4% 7,9%
Akranes 9,1% 8,2% 8,1%
Vestfirðir 15,5% 11,7%
Norðurland nema Akureyri 12,5% 9,2%
Akureyri 8,6% 8,0% 7,8%
Austurland 11,4% 9,6% 8,7%
Suðurland nema Selfoss 10,4% 9,4% 7,5%
Selfoss 9,5% 8,9% 7,7%
Vestmannaeyjar 9,1%  

Ávöxtun af útleigu íbúðarhúsnæðis þar sem leigusali er fjármálastofnanir
Svæði Stúdíó íbúð 2.herbergja 3.herbergja 4.-5 herbergja
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes
6,5% 5,6% 5,1%
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 5,7%
Kópavogur 7,0% 6,6% 6,2%
Garðabær og Hafnarfjörður  6,6% 6,4% 6,3%
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur 6,5% 6,7% 6,2%
Breiðholt 7,2% 7,6% 6,5%
Kjalarnes og Mosfellsbær
Suðurnes nema Reykjanesbær 7,8% 8,8% 7,1%
Reykjanesbær 8,1% 8,6% 9,0%
Vesturland nema Akranes 7,3% 8,4%
Akranes
Vestfirðir
Norðurland nema Akureyri 14,8% 8,8%
Akureyri 7,4% 6,5%
Austurland 8,1% 8,8% 9,0%
Suðurland nema Selfoss 8,5% 7,8% 7,0%
Selfoss 16,5% 6,3%
Vestmannaeyjar  

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk fjölda samninga og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki. Einnig er að finna tímaröð aftur til ársins 2011.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar