Þjóðskrá19. október 2016

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í september 2016

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 156,9 stig í september 2016 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 4,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 10,4%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 156,9 stig í september 2016 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 4,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 10,4%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í september 2016.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 1.031 samningur, sem þinglýst var í september 2016. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í september 2016 eru því unnar upp úr 551 leigusamningi sem þinglýst var í september 2016.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í september 2016 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3272

2758

2312

2194

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3069

2290

2245

1750

Kópavogur

3126

2435

2038

1930

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2209

2053

1553

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

3102

2241

2029

1748

Breiðholt

-

2064

2110

1814

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

2117

1948

-

Suðurnes

-

1622

1542

1330

Vesturland

-

1436

1370

1416

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

1161

1384

1078

Akureyri

-

2045

1551

1378

Austurland

-

-

1297

1109

Suðurland

-

1538

1515

958

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar