Þjóðskrá16. nóvember 2016

Velta á markaði 4.nóv - 10.nóv 2016

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 4. nóvember til og með 10. nóvember 2016 var 121. Þar af voru 82 samningar um eignir í fjölbýli, 31 samningur um sérbýli og 8 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 5.162 milljónir króna og meðalupphæð á samning 42,7 milljónir króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 4. nóvember til og með 10. nóvember 2016 var 121. Þar af voru 82 samningar um eignir í fjölbýli, 31 samningur um sérbýli og 8 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 5.162 milljónir króna og meðalupphæð á samning 42,7 milljónir króna.

Á sama tíma var 22 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 8 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 598 milljónir króna og meðalupphæð á samning 27,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 10 samningar um eignir í fjölbýli, 1 samningur um sérbýli og 1 samningur um annars konar eign en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 296 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,7 milljónir króna.

Á sama tíma var 18 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 15 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eign en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 519 milljónir króna og meðalupphæð á samning 28,8 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 4. nóvember til og með 10. nóvember
Svæði
Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 66 55 9 2 81
Seltjarnarnes 2 0 1 1 3
Mosfellsbær 11 3 7 1 9
Kópavogur 20 14 5 1 24
Hafnarfjörður 13 5 5 3 20
Garðabær 9 5 4 0 11
Samtals 121 82 31 8 149
Velta (millj. kr.) 5.162 6.564
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 42,7 44,1
Suðurnes 22 8 12 2 22
Velta (millj. kr.) 598 541
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 27,2 25,2
Akureyri 12 10 1 1 16
Velta (millj. kr.) 296 432
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 24,7 26,8
Árborgarsvæðið 18 2 15 1 13
Velta (millj. kr.) 519 311
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 28,8 24,7

 

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar