Þjóðskrá04. janúar 2017

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í desember 2016

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í desember 2016 var 763. Heildarvelta nam 34,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 45,3 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 9,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,2 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í desember 2016 var 763. Heildarvelta nam 34,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 45,3 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 9,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,2 milljörðum króna.

Þegar desember 2016 er borinn saman við nóvember 2016 fækkar kaupsamningum um 7,1% og velta minnkar um 4,4%. Í nóvember 2016 var 821 kaupsamningi þinglýst, velta nam 36,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 44 milljónir króna.

Þegar desember 2016 er borinn saman við desember 2015 fjölgar kaupsamningum um 15,8% og velta eykst um 32,7%. Í desember 2015 var 659 kaupsamningum þinglýst, velta nam 26,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 39,5 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 11 í desember 2016 eða 1,5% af öllum samningum. Í nóvember 2016 voru makaskiptasamningar 11 eða 1,4% af öllum samningum. Í desember 2015 voru makaskiptasamningar 10 eða 1,7% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á nóvember 2016 og desember 2016

Nóvember 2016

Desember 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

25.667

637

21.978

574

-14,4%

-9,9%

Sérbýli

8.692

143

9.410

148

8,3%

3,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.799

41

3.186

41

77,1%

0,0%

Samtals

36.158

821

34.574

763

-4,4%

-7,1%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á desember 2015 og desember 2016

Desember 2015

Desember 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

18.134

504

21.978

574

21,2%

13,9%

Sérbýli

5.628

102

9.410

148

67,2%

45,1%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.300

53

3.186

41

38,5%

-22,6%

Samtals

26.062

659

34.574

763

32,7%

15,8%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Desember 2015
Nóvember 2016
Desember 2016
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
606
780
722
19,1%
-7,4%
Makaskipti eða lausafé
11
11
12
9,1%
9,1%
Makaskipti
10
11
11
10,0%
0,0%
Lausafé
1
0
2
-
-
Hlutfall makaskipta
1,7%
1,4%
1,5%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar