Þjóðskrá20. febrúar 2017

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í janúar 2017

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 162,7 stig í janúar 2017 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 11,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 162,7 stig í janúar 2017 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 11,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í janúar 2017.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 680 samningar, sem þinglýst var í janúar 2017. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í janúar 2017 eru því unnar upp úr 447 leigusamningum sem þinglýst var í janúar 2017.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í janúar 2017 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3185

2756

2401

2229

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

2440

2383

2105

1694

Kópavogur

-

2593

2029

1599

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2379

1930

1880

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2350

2196

1814

Breiðholt

-

2123

1919

1817

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

2311

1550

Suðurnes

-

1830

1641

1284

Vesturland

-

1638

1460

1360

Vestfirðir

-

-

878

779

Norðurland nema Akureyri

-

1229

969

1415

Akureyri

-

1530

1606

1504

Austurland

-

-

1451

-

Suðurland

-

1747

1506

1278

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar