Þjóðskrá08. mars 2017

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2017

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2017 var 641. Heildarvelta nam 31,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 49 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,4 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 6,7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,4 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2017 var 641. Heildarvelta nam 31,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 49 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,4 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 6,7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,4 milljörðum króna.

Þegar febrúar 2017 er borinn saman við janúar 2017 fækkar kaupsamningum um 6,7% og velta minnkar um 3%. Í janúar 2017 var 687 kaupsamningum þinglýst, velta nam 32,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 47,2 milljónir króna.

Þegar febrúar 2017 er borinn saman við febrúar 2016 fækkar kaupsamningum um 1,5% og velta eykst um 4,8%. Í febrúar 2016 var 651 kaupsamningi þinglýst, velta nam 30 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 46,1 milljón króna.

Makaskiptasamningar voru 4 í febrúar 2017 eða 0,7% af öllum samningum. Í janúar 2017 voru makaskiptasamningar 10 eða 1,6% af öllum samningum. Í febrúar 2016 voru makaskiptasamningar 21 eða 3,5% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á janúar 2017 og febrúar 2017

Janúar 2017

Febrúar 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

20.463

507

22.389

489

9,4%

-3,6%

Sérbýli

8.043

127

6.663

101

-17,1%

-20,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.897

53

2.377

51

-39,0%

-3,8%

Samtals

32.402

687

31.430

641

-3,0%

-6,7%

 

Tafla 2. Samanburður á febrúar 2016 og febrúar 2017

Febrúar 2016

Febrúar 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

18.079

478

22.389

489

23,8%

2,3%

Sérbýli

6.970

127

6.663

101

-4,4%

-20,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

4.941

46

2.377

51

-51,9%

10,9%

Samtals

29.990

651

31.430

641

4,8%

-1,5%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Febrúar 2016
Janúar 2017
Febrúar 2017
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
605
634
590
-2,5%
-6,9%
Makaskipti eða lausafé
23
11
5
-78,3%
-54,5%
Makaskipti
21
10
4
-81,0%
-60,0%
Lausafé
2
1
1
-
-
Hlutfall makaskipta
3,5%
1,6%
0,7%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar