Endurbætt verðsjá kaup- og leiguverðs er komin í loftið á vef Þjóðskrár Íslands (https://verdsja.skra.is). Nú má til viðbótar við kaupverð finna upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis eftir tímabilum, svæðum, herbergjafjölda og fleiru. Verðsjáin tekur við af eldri verðsjá kaupverðs sem lengi hefur verið hluti af upplýsingagjöf Þjóðskrár Íslands um íbúðarhúsnæðismarkaðinn. Nýja verðsjáin sýnir upplýsingar með myndrænni hætti en áður, bæði á korti og með línuritum, ásamt því að boðið er upp á nákvæmari svæðaskiptingu en áður. Við hvetjum alla til að prófa.
Þjóðskrá04. apríl 2017
Verðsjá kaup- og leiguverðs
Endurbætt verðsjá sem inniheldur kaup- og leiguverð er komin í loftið á vef Þjóðskrár Íslands.