Þjóðskrá20. júní 2017

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í maí 2017

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 574,6 stig í maí 2017 (janúar 1994=100) og hækkaði um 1,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 6,9%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 13,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 23,5%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 574,6 stig í maí 2017  (janúar 1994=100) og hækkaði um 1,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 6,9%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 13,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 23,5%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.

Ef þú vilt skoða tímaröð fyrir vísitöluna, þá getur þú smellt hér til að skoðað gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Vísitala íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir júní 2017 verður birt 18. júlí n.k.

 
 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar