Þjóðskrá17. júlí 2017

Velta á markaði 7.júlí - 13.júlí 2017

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 7. júlí til og með 13. júlí 2017 var 182. Þar af voru 130 samningar um eignir í fjölbýli, 40 samningar um sérbýli og 12 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 10.995 milljónir króna og meðalupphæð á samning 60,4 milljónir króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 7. júlí til og með 13. júlí 2017 var 182. Þar af voru 130 samningar um eignir í fjölbýli, 40 samningar um sérbýli og 12 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 10.995 milljónir króna og meðalupphæð á samning 60,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 18 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 8 samningar um eignir í fjölbýli og 10 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 616 milljónir króna og meðalupphæð á samning 34,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 19 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 6 samningar um eignir í fjölbýli, 11 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 645 milljónir króna og meðalupphæð á samning 34 milljónir króna.

Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af var 1 samningur um eign í fjölbýli, 9 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 326 milljónir króna og meðalupphæð á samning 27,1 milljón króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 7. júlí til og með 13. júlí
Svæði Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 93 79 9 5 72
Seltjarnarnes 1 1 0 0 3
Mosfellsbær 13 5 7 1 11
Kópavogur 38 26 9 3 24
Hafnarfjörður 22 11 9 2 19
Garðabær 15 8 6 1 11
Samtals 182 130 40 12 140
Velta (millj. kr.) 10.995 7.645
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 60,4 54,6
Suðurnes 18 8 10 0 20
Velta (millj. kr.) 616 613
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 34,2 31,3
Akureyri 19 6 11 2 16
Velta (millj. kr.) 645 507
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 34 31,4
Árborgarsvæðið 12 1 9 2 15
Velta (millj. kr.) 326 474
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 27,1 32

 

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar