Þjóðskrá19. júlí 2017

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í júní 2017

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 170,3 stig í júní 2017 (janúar 2011=100) og lækkar um 2,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 13,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 170,3 stig í júní 2017 (janúar 2011=100) og lækkar um 2,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 13,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í júní 2017.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 666 samningar, sem þinglýst var í júní 2017. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í júní 2017 eru því unnar upp úr 482 leigusamningum sem þinglýst var í júní 2017.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í júní 2017 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3709

2950

2594

2206

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3248

2623

2200

1864

Kópavogur

-

2441

2161

2113

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2580

2029

1710

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2292

2142

1985

Breiðholt

-

2596

2120

1944

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

-

-

Suðurnes

-

1837

1756

1212

Vesturland

-

1662

1306

1490

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

1342

987

Akureyri

-

2113

1892

1566

Austurland

-

1800

1423

-

Suðurland

-

1553

1510

1086

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar