Þjóðskrá09. ágúst 2017

Velta á markaði 28.júlí - 3.ágúst 2017

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 28. júlí til og með 3. ágúst 2017 var 109. Þar af voru 74 samningar um eignir í fjölbýli, 23 samningar um sérbýli og 12 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 4.966 milljónir króna og meðalupphæð á samning 45,6 milljónir króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 28. júlí til og með 3. ágúst 2017 var 109. Þar af voru 74 samningar um eignir í fjölbýli, 23 samningar um sérbýli og 12 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 4.966 milljónir króna og meðalupphæð á samning 45,6 milljónir króna.

Á sama tíma var 9 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eign en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 339 milljónir króna og meðalupphæð á samning 37,7 milljónir króna.

Á sama tíma var 16 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 8 samningar um eignir í fjölbýli, 6 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 477 milljónir króna og meðalupphæð á samning 29,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 7 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af var 1 samningur um eign í fjölbýli og 6 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 207 milljónir króna og meðalupphæð á samning 29,6 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 28. júlí til og með 3. ágúst
Svæði Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 60 45 13 2 72
Seltjarnarnes 2 1 1 0 3
Mosfellsbær 11 4 1 6 11
Kópavogur 14 9 3 2 25
Hafnarfjörður 15 10 5 0 19
Garðabær 7 5 0 2 11
Samtals 109 74 23 12 141
Velta (millj. kr.) 4.966 7.442
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 45,6 52,9
Suðurnes 9 3 5 1 16
Velta (millj. kr.) 339 516
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 37,7 32,7
Akureyri 16 8 6 2 16
Velta (millj. kr.) 477 509
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 29,8 31,8
Árborgarsvæðið 7 1 6 0 15
Velta (millj. kr.) 207 458
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 29,6 31,2

 

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar