Þjóðskrá03. nóvember 2017

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild 3. ársfjórðungur 2017

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningu einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. júlí til 31. september 2017. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrár Íslands. Þar sem skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningu einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. júlí til 31. september 2017. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrár Íslands. Þar sem skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þann 13. febrúar 2013 tóku gildi breytingar á lögum um skráð trúfélög nr. 108/1999, (lífsskoðunarfélög, aðild barna að skráðum trú- eða lífsskoðunarfélögum o.fl.). Þessar lagabreytingar miðuðu að því að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga á við stöðu skráðra trúfélaga. Á vef innanríkisráðuneytisins er að finna lista yfir skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Verklag við skráningu á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild var breytt í kjölfar gildistöku lagabreytinganna sem m.a. hafði þau áhrif að einstaklingum með stöðuna ótilgreint trú- eða lífsskoðunarfélag hefur fjölgað. Meginbreytingin var að börn eru nú skráð í ótilgreint trúfélag við fæðingu ef foreldrar sem fara sameiginlega með forsjá eru í sitthvoru trú- eða lífskoðunarfélaginu. Jafnframt er skráning erlends ríkisborgara úr stöðunni ótilgreint í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag á grundvelli tilkynningar frá honum nú talin til breytinga.

Hér fylgja nokkrar töflur með greiningu á breytingum sem hafa orðið á tímabilinu. 

Úr Þjóðkirkjunni gengu 342 fleiri en í hana á tímabilinu. Í fríkirkjurnar þrjár gengu 117 fleiri en úr þeim og 83 fleiri í önnur trúfélög en úr þeim. Í lífsskoðunarfélagið Siðmennt gengu 99 fleiri en úr því. Nýskráðir utan félaga voru 302 fleiri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga og í ótilgreint trúfélag voru 259 færri skráðir en fluttust úr þeim flokki.

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild skráðar 1. júlí-30. september 2017

Fyrri félagsaðild
Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1178 497 53 262 6 78 282
Þjóðkirkjan 155 22 48 17 68
Fríkirkjur 170 126 4 13 9 18
Önnur trúfélög 345 77 5 55 2 23 183
Lífsskoðunarfélög 105 40 5 31 28 1
Utan félaga 380 239 16 109 4 12
Ótilgreint 23 15 1 6 1

Miðað er við vinnsludag. 
Fríkirkjur: Fríkirkjan í Reykjavík, Óháði söfnuðurinn í Reykjavík, Fríkirkjan í Hafnarfirði.

Til þess að taka dæmi úr töflunni hér fyrir ofan þýða tölurnar að alls gengu 497 úr þjóðkirkjunni á tímabilinu 1. júlí til 30. september 2017. Af þeim 497 sem gengu úr þjóðkirkjunni skráðu 126 sig í fríkirkjur. Á sama tíma gengu 155 í þjóðkirkjuna, þar af voru 22 áður í fríkirkjum.

Eftirfarandi töflur eru yfirlit um fjölda þeirra sem skiptu um trú- eða lífsskoðunarfélag á 3. ársfjórðungi 2017, annars vegar eftir því í hvaða félag þeir gengu og hinsvegar úr hvaða félagi þeir komu.

 Flokkað eftir kyni

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 16 ára og eldri 482 36 52 160 46 181 7
Konur 16 ára og eldri 472 43 62 123 57 173 14
Börn 15 ára og yngri 224 76 56 62 2 26 2
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 16 ára og eldri 482 194 18 149 2 40 79
Konur 16 ára og eldri 472 240 26 91 3 35 77
Börn 15 ára og yngri 224 63 9 22 1 3 126

Aldur 31. desember 2016

 

Flokkað eftir fæðingarári

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 980 85 122 289 103 360 21
1940 og fyrr 2 2
1941-1945 3 2 1
1946-1950 11 5 4 1 1
1951-1955 24 2 5 7 2 7 1
1956-1960 30 4 5 13 2 6
1961-1965 39 4 7 15 3 10
1966-1970 43 5 5 16 5 11 1
1971-1975 76 8 5 26 13 24 0
1976-1980 91 11 14 33 10 23 0
1981-1985 124 16 16 40 18 34 0
1986-1990 207 15 30 52 33 72 5
1991-1995 196 8 18 55 13 96 6
1996-2000 108 1 1 24 4 70 8
2001-2005 26 6 8 6 6
2006-2010 33 7 8 13 2 2 1
2011-2015 50 12 12 17 8 1
2016 115 51 28 26 10
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1063 480 53 256 5 76 193
1940 og fyrr 2 2
1941-1945 3 2 1
1946-1950 11 5 2 4
1951-1955 24 13 7 1 1 2
1956-1960 30 9 1 12 0 3 5
1961-1965 39 17 1 13 1 1 6
1966-1970 43 22 2 7 3 9
1971-1975 76 28 4 17 11 16
1976-1980 91 38 6 21 2 10 14
1981-1985 124 34 13 38 0 15 24
1986-1990 207 86 5 57 1 18 40
1991-1995 196 100 7 51 10 28
1996-2000 108 78 3 12 3 12
2001-2005 26 13 5 4 4
2006-2010 33 13 2 7 11
2011-2015 50 20 2 5 1 22
2016 115 17 6 1 2 89

Smelltu hér til þess að skoða gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar