Þjóðskrá08. nóvember 2017

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í október 2017

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í október 2017 var 642. Heildarvelta nam 30,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 48,1 milljón króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,3 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í október 2017 var 642. Heildarvelta nam 30,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 48,1 milljón króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,3 milljörðum króna.

Þegar október 2017 er borinn saman við september 2017 fjölgar kaupsamningum um 33,2% og velta eykst um 33,1%. Í september 2017 var 482 kaupsamningum þinglýst, velta nam 23,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 48,2 milljónir króna.

Þegar október 2017 er borinn saman við október 2016 fækkar kaupsamningum um 3% og velta eykst um 4,1%. Í október 2016 var 662 kaupsamningum þinglýst, velta nam 29,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 44,8 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 8 í október 2017 eða 1,3% af öllum samningum. Í september 2017 voru makaskiptasamningar 6 eða 1,3% af öllum samningum. Í október 2016 voru makaskiptasamningar 12 eða 1,9% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á september 2017 og október 2017

September 2017

Október 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

16.053

377

22.616

509

40,9%

35,0%

Sérbýli

5.248

70

6.992

96

33,2%

37,1%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.911

35

1.285

37

-32,8%

5,7%

Samtals

23.212

482

30.893

642

33,1%

33,2%

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á október 2016 og október 2017

Október 2016

Október 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

19.145

501

22.616

509

18,1%

1,6%

Sérbýli

7.269

126

6.992

96

-3,8%

-23,8%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.268

35

1.285

37

-60,7%

5,7%

Samtals

29.682

662

30.893

642

4,1%

-3,0%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Október 2016
September 2017
Október 2017
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
629
447
605
-3,8%
35,3%
Makaskipti eða lausafé
14
8
8
-42,9%
0%
Makaskipti
12
6
8
-33,3%
33,3%
Lausafé
2
2
0
-
-
Hlutfall makaskipta
1,9%
1,3%
1,3%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar