Þjóðskrá06. desember 2017

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í nóvember 2017

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í nóvember 2017 var 729. Heildarvelta nam 36,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 50,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 24,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8,6 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,6 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í nóvember 2017 var 729. Heildarvelta nam 36,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 50,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 24,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8,6 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,6 milljörðum króna.

Þegar nóvember 2017 er borinn saman við október 2017 fjölgar kaupsamningum um 13,6% og velta eykst um 19,2%. Í október 2017 var 642 kaupsamningum þinglýst, velta nam 30,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 48,1 milljón króna.

Þegar nóvember 2017 er borinn saman við nóvember 2016 fækkar kaupsamningum um 11,2% og velta eykst um 1,8%. Í nóvember 2016 var 821 kaupsamningi þinglýst, velta nam 36,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 44 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 18 í nóvember 2017 eða 2,6% af öllum samningum. Í október 2017 voru makaskiptasamningar 8 eða 1,3% af öllum samningum. Í nóvember 2016 voru makaskiptasamningar 11 eða 1,4% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á október 2017 og nóvember 2017

Október 2017

Nóvember 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.616

509

24.602

569

8,8%

11,8%

Sérbýli

6.992

96

8.632

120

23,5%

25,0%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.285

37

3.588

40

179,2%

8,1%

Samtals

30.893

642

36.821

729

19,2%

13,6%

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á nóvember 2016 og nóvember 2017

Nóvember 2016

Nóvember 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

25.667

637

24.602

569

-4,1%

-10,7%

Sérbýli

8.692

143

8.632

120

0,7%

-16,1%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.799

41

3.588

40

99,5%

-2,4%

Samtals

36.158

821

36.821

729

1,8%

-11,2%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Nóvember 2016
Október 2017
Nóvember 2017
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
780
605
689
-11,7%
13,9%
Makaskipti eða lausafé
11
8
18
63,6%
125%
Makaskipti
11
8
18
63,6%
125%
Lausafé
0
0
0
-
-
Hlutfall makaskipta
1,4%
1,3%
2,6%
-
-

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar