Þjóðskrá29. desember 2017

Fasteignamarkaðurinn árið 2017

Rúmlega 12.000 kaupsamningum var þinglýst árið 2017 á landinu öllu og námu heildarviðskipti með fasteignir tæplega 504 milljörðum króna. Meðalupphæð á hvern samning var um 42 milljónir króna. Til samanburðar má sjá að árið 2016 var veltan rúmlega 460 milljarðar, kaupsamningar 12.411 og meðalupphæð hvers samnings um 37 milljónir króna. Heildarvelta fasteignaviðskipta hefur því aukist um rúmlega 9% frá árinu 2015 en kaupsamningum fækkað um rúmlega 3%.

Rúmlega 12.000 kaupsamningum var þinglýst árið 2017 á landinu öllu og námu heildarviðskipti með fasteignir tæplega 504 milljörðum króna. Meðalupphæð á hvern samning var um 42 milljónir króna. Til samanburðar má sjá að árið 2016 var veltan rúmlega 460 milljarðar, kaupsamningar 12.411 og meðalupphæð hvers samnings um 37 milljónir króna. Heildarvelta fasteignaviðskipta hefur því aukist um rúmlega 9% frá árinu 2016 en kaupsamningum fækkað um rúmlega 3%. 

Sé litið til höfuðborgarsvæðisins stefnir heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga í um 370 milljarða króna, kaupsamningar verða um 7.400 og meðalupphæð kaupsamnings verður um 50 milljónir króna. Heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2016 var  350 milljarðar króna og fjöldi kaupsamninga var 7.957. Meðalupphæð samninga árið 2016 var um 44 milljónir króna. Heildarvelta á höfuðborgarsvæðinu hefur því aukist um tæplega 6% og fjöldi kaupsamninga hefur fækkað um tæplega 7%.

Smelltu hér ef þú vilt skoða tímaraðir með veltu og fjölda kaupsamninga. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið "Save target/link as" og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar