Þjóðskrá04. apríl 2018

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í mars 2018

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í mars 2018 var 623. Heildarvelta nam 31,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 50,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli nam 21 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 7,6 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,8 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í mars 2018 var 623. Heildarvelta nam 31,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 50,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli nam 21 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 7,6 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,8 milljörðum króna.

Þegar mars 2018 er borinn saman við febrúar 2018 fjölgar kaupsamningum um 26,4% og velta eykst um 15,3%. Í febrúar 2018 var 493 kaupsamningum þinglýst, velta nam 27,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 55,4 milljónir króna.

Þegar mars 2018 er borinn saman við mars 2017 fækkar kaupsamningum um 19,7% og velta minnkar um 11,9%. Í mars 2017 var 776 kaupsamningum þinglýst, velta nam 35,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 46 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 8 í mars 2018 eða 1,3% af öllum samningum. Í febrúar 2018 var 1 makaskiptasamningur eða 0,2% af öllum samningum. Í mars 2017 voru makaskiptasamningar 17 eða 2,4% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á febrúar 2018 og mars 2018

Febrúar 2018

Mars 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

18.581

385

21.014

484

13,1%

25,7%

Sérbýli

5.427

75

7.601

110

40,1%

46,7%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.285

33

2.844

29

-13,4%

-12,1%

Samtals

27.293

493

31.458

623

15,3%

26,4%

Tafla 2. Samanburður á mars 2017 og mars 2018

Mars 2017

Mars 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.778

573

21.014

484

-7,7%

-15,5%

Sérbýli

9.328

147

7.601

110

-18,5%

-25,2%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.601

56

2.844

29

-21,0%

-48,2%

Samtals

35.707

776

31.458

623

-11,9%

-19,7%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Mars 2017
Febrúar 2018
Mars 2018
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
720
460
594
-17,5%
29,1%
Makaskipti eða lausafé
17
1
9
-47,1%
800%
Makaskipti
17
1
8
-52,9%
700%
Lausafé
0
0
1
-
-
Hlutfall makaskipta
2,4%
0,2%
1,3%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar