Þjóðskrá13. apríl 2018

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild 1. ársfjórðungur 2018

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningu einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2018. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrár Íslands. Þar sem skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningu einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2018. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrár Íslands. Þar sem skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þann 13. febrúar 2013 tóku gildi breytingar á lögum um skráð trúfélög nr. 108/1999, (lífsskoðunarfélög, aðild barna að skráðum trú- eða lífsskoðunarfélögum o.fl.). Þessar lagabreytingar miðuðu að því að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga á við stöðu skráðra trúfélaga. Á vef innanríkisráðuneytisins er að finna lista yfir skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Verklag við skráningu á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild var breytt í kjölfar gildistöku lagabreytinganna sem m.a. hafði þau áhrif að einstaklingum með stöðuna ótilgreint trú- eða lífsskoðunarfélag hefur fjölgað. Meginbreytingin var að börn eru nú skráð í ótilgreint trúfélag við fæðingu ef foreldrar sem fara sameiginlega með forsjá eru í sitthvoru trú- eða lífskoðunarfélaginu. Jafnframt er skráning erlends ríkisborgara úr stöðunni ótilgreint í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag á grundvelli tilkynningar frá honum nú talin til breytinga.

Hér fylgja nokkrar töflur með greiningu á breytingum sem hafa orðið á tímabilinu. 

Úr Þjóðkirkjunni gengu 634 fleiri en í hana á tímabilinu. Í fríkirkjurnar þrjár gengu 56 fleiri en úr þeim og 90 fleiri í önnur trúfélög en úr þeim. Í lífsskoðunarfélagið Siðmennt gengu 103 fleiri en úr því. Nýskráðir utan félaga voru 505 fleiri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga og í ótilgreint trúfélag voru 120 færri skráðir en fluttust úr þeim flokki.

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild skráðar 1. janúar-31. mars 2018

Fyrri félagsaðild
Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1405 802 73 208 9 124 189
Þjóðkirkjan 168 17 50 - 33 68
Fríkirkjur 129 85 7 11 - 12 14
Önnur trúfélög 298 107 14 51 1 42 83
Lífsskoðunarfélög 112 55 7 11 36 3
Utan félaga 629 503 25 73 7 21
Ótilgreint 69 52 3 12 1 1

Miðað er við vinnsludag. 
Fríkirkjur: Fríkirkjan í Reykjavík, Óháði söfnuðurinn í Reykjavík, Fríkirkjan í Hafnarfirði.

Til þess að taka dæmi úr töflunni hér fyrir ofan þýða tölurnar að alls gengu 802 úr þjóðkirkjunni á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2018. Af þeim 802 sem gengu úr þjóðkirkjunni skráðu 85 sig í fríkirkjur. Á sama tíma gengu 168 í þjóðkirkjuna, þar af voru 17 áður í fríkirkjum.

Eftirfarandi töflur eru yfirlit um fjölda þeirra sem skiptu um trú- eða lífsskoðunarfélag á 1. ársfjórðungi 2018, annars vegar eftir því í hvaða félag þeir gengu og hinsvegar úr hvaða félagi þeir komu.

 Flokkað eftir kyni

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 16 ára og eldri 614 28 42 155 49 303 37
Konur 16 ára og eldri 585 53 48 112 57 285 30
Börn 15 ára og yngri 206 87 39 31 6 41 2
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 16 ára og eldri 614 379 28 93 5 60 49
Konur 16 ára og eldri 585 351 37 84 4 59 50
Börn 15 ára og yngri 206 72 8 31 - 5 90

Aldur 31. mars 2018

Flokkað eftir fæðingarári

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1238 104 97 274 106 590
1940 og fyrr 9 1 1 4 - 2 1
1941-1945 11 - 3 2 - 6 -
1946-1950 18 2 2 4 3 7 -
1951-1955 38 1 5 7 3 18 4
1956-1960 60 4 9 12 3 29 3
1961-1965 59 3 8 20 - 25 3
1966-1970 94 6 6 29 6 42 5
1971-1975 99 15 10 18 9 42 5
1976-1980 113 14 8 21 14 50 6
1981-1985 140 9 9 33 18 67 4
1986-1990 185 11 17 34 27 88 8
1991-1995 220 10 11 57 15 115 12
1996-2000 147 5 1 24 7 94 16
2001-2005 45 23 7 9 1 5 -
2006-2010 38 6 6 7 5 13 1
2011-2015 33 3 12 5 - 13 -
2016 96 55 14 12 1 13 1
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1309 784 73 201 9 122
1940 og fyrr 9 5 2 - - 2 -
1941-1945 11 9 1 - - 1 -
1946-1950 18 9 4 1 - 4 -
1951-1955 38 32 1 1 - 4 -
1956-1960 60 35 6 10 - 7 2
1961-1965 59 45 3 6 - 4 1
1966-1970 94 55 3 9 - 14 13
1971-1975 99 52 7 19 1 12 8
1976-1980 113 55 8 21 2 15 12
1981-1985 140 73 8 22 4 14 19
1986-1990 185 106 9 29 1 25 15
1991-1995 220 141 6 38 1 14 20
1996-2000 147 110 7 20 - 3 7
2001-2005 45 12 6 15 - 3 9
2006-2010 38 24 1 7 - - 6
2011-2015 33 21 1 3 - - 8
2016 96 18 - 7 - 2 69

Smelltu hér til þess að skoða gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar