Þjóðskrá18. apríl 2018

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í mars 2018

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 184,9 stig í mars 2018 (janúar 2011=100) og hækkar um 2,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 10%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 184,9 stig í mars 2018 (janúar 2011=100) og hækkar um 2,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 10%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í mars 2018.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 607 samningar, sem þinglýst var í mars 2018. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í mars 2018 eru því unnar upp úr 449 leigusamningum sem þinglýst var í mars 2018.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í mars 2018 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3932

3183

2862

2362

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3578

2749

2364

2215

Kópavogur

4133

2827

2496

2075

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2528

2390

2145

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

3751

2789

2375

1895

Breiðholt

-

2473

2163

1901

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

2498

-

Suðurnes

-

2231

1875

1565

Vesturland

-

-

1738

1358

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

1539

-

-

Akureyri

-

2266

1920

1435

Austurland

-

-

1341

-

Suðurland

-

1955

1689

1683

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar