Þjóðskrá04. júlí 2018

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í júní 2018

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júní 2018 var 651. Heildarvelta nam 33 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 50,6 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,9 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,6 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júní 2018 var 651. Heildarvelta nam 33 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 50,6 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,9 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,6 milljörðum króna.

Þegar júní 2018 er borinn saman við maí 2018 fækkar kaupsamningum um 12,3% og velta minnkar um 10,5%. Í maí 2018 var 742 kaupsamningum þinglýst, velta nam 36,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 49,6 milljónir króna.

Þegar júní 2018 er borinn saman við júní 2017 fjölgar kaupsamningum um 7,1% og velta minnkar um 0,1%. Í júní 2017 var 608 kaupsamningum þinglýst, velta nam 33 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 54,2 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á maí 2018 og júní 2018

Maí 2018

Júní 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

25.977

580

22.944

513

-11,7%

-11,6%

Sérbýli

9.098

123

8.448

113

-7,1%

-8,1%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.733

39

1.561

25

-9,9%

-35,9%

Samtals

36.808

742

32.954

651

-10,5%

-12,3%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á júní 2017 og júní 2018

Júní 2017

Júní 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

23.117

462

22.944

513

0,7%

11,0%

Sérbýli

8.130

118

8.448

113

3,9%

-4,2%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.732

28

1.561

25

-9,8%

-10,7%

Samtals

32.979

608

32.954

651

0,1%

7,1%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

Júní 2017
Maí 2018
Júní 2018
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
580
703
626
7,9%
-11,0%
Makaskipti eða lausafé
12
11
4
-66,7%
63,6%
Makaskipti
12
11
4
-66,7%
63,6%
Lausafé
0
0
0
-
-
Hlutfall makaskipta
0,2%
1,6%
0,6%
-
-



 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar