Þjóðskrá05. september 2018

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2018

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2018 var 780. Heildarvelta nam 37,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 48,6 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 25,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 9,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,9 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2018 var 780. Heildarvelta nam 37,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 48,6 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 25,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 9,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,9 milljörðum króna.

Þegar ágúst 2018 er borinn saman við júlí 2018 fjölgar kaupsamningum um 19,1% og velta eykst um 12,8%. Í júlí 2018 var 655 kaupsamningum þinglýst, velta nam 33,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 51,3 milljónir króna.

Þegar ágúst 2018 er borinn saman við ágúst 2017 fjölgar kaupsamningum um 46,1% og velta eykst um 47,8%. Í ágúst 2017 var 534 kaupsamningum þinglýst, velta nam 25,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 48 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 12 í ágúst 2018 eða 1,6% af öllum samningum. Í júlí 2018 voru makaskiptasamningar 7 eða 1,1% af öllum samningum. Í ágúst 2017 voru makaskiptasamningar 3 eða 0,6% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á júlí 2018 og ágúst 2018

Júlí 2018

Ágúst 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.581

511

25.581

604

13,3%

18,2%

Sérbýli

9.344

121

9.417

124

0,8%

2,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.683

23

2.898

52

72,3%

126,1%

Samtals

33.608

655

37.896

780

12,8%

19,1%

 

Tafla 2. Samanburður á ágúst 2017 og ágúst 2018

Ágúst 2017

Ágúst 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

16.654

397

25.581

604

53,6%

52,1%

Sérbýli

7.234

102

9.417

124

30,2%

21,6%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.745

35

2.898

52

66,1%

48,6%

Samtals

25.632

534

37.896

780

47,8%

46,1%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Ágúst 2017
Júlí 2018
Ágúst 2018
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
499
632
728
45,9%
15,2%
Makaskipti eða lausafé
4
8
15
275%
87,5%
Makaskipti
3
7
12
300%
71,4%
Lausafé
1
1
3
-
-
Hlutfall makaskipta
0,6%
1,1%
1,6%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar