Þjóðskrá17. október 2018

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í september 2018

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 189,6 stig í september 2018 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 4,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,1%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 189,6 stig í september 2018 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 4,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,1%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í september 2018.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 729 samningar, sem þinglýst var í september 2018. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í september 2018 eru því unnar upp úr 556 leigusamningum sem þinglýst var í september 2018.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í september 2018 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

4891

3005

2830

2790

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3714

2783

2321

2177

Kópavogur

3017

2743

2441

1984

Garðabær og Hafnarfjörður

3282

2628

2429

2055

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

4514

2844

3116

1987

Breiðholt

-

2560

2231

2095

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

2187

2559

Suðurnes

-

-

1883

1520

Vesturland

-

1943

1648

1496

Vestfirðir

-

-

1464

-

Norðurland nema Akureyri

-

1037

1399

-

Akureyri

3042

2130

1966

1895

Austurland

-

1514

1589

1135

Suðurland

-

2407

1969

1486

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar