Þjóðskrá07. nóvember 2018

Velta á markaði 26.okt - 1.nóv 2018

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 26. október til og með 1. nóvember 2018 var 148. Þar af voru 116 samningar um eignir í fjölbýli, 19 samningar um sérbýli og 13 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 7.251 milljón króna og meðalupphæð á samning 49 milljónir króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 26. október til og með 1. nóvember 2018 var 148. Þar af voru 116 samningar um eignir í fjölbýli, 19 samningar um sérbýli og 13 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 7.251 milljón króna og meðalupphæð á samning 49 milljónir króna.

Á sama tíma var 22 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 13 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 802 milljónir króna og meðalupphæð á samning 36,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 10 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 6 samningar um eignir í fjölbýli og 4 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 288 milljónir króna og meðalupphæð á samning 28,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 106 milljónir króna og meðalupphæð á samning 35,3 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 26. október til og með 1. nóvember
Svæði Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 75 66 4 5 93
Seltjarnarnes 4 3 1 0 3
Mosfellsbær 12 6 4 2 11
Kópavogur 25 18 3 4 28
Hafnarfjörður 25 19 5 1 19
Garðabær 7 4 2 1 9
Samtals 148 116 19 13 164
Velta (millj. kr.) 7.251 8.306
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 49 50,7
Suðurnes 22 13 8 1 20
Velta (millj. kr.) 802 734
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 36,4 36
Akureyri 10 6 4 0 15
Velta (millj. kr.) 288 525
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 28,8 36
Árborgarsvæðið 3 1 2 0 10
Velta (millj. kr.) 106 344
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 35,3 33,3

 

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar