Þjóðskrá13. desember 2018

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í desember 2018

Alls voru 44.156 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi 1. desember sl. og hefur þeim fjölgað um 6.344 manns frá því á sama tíma í fyrra eða um 16,8%.

Alls voru 44.156 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi 1. desember sl. og hefur þeim fjölgað um 6.344 manns frá því á sama tíma í fyrra eða um 16,8%. 

Flestir erlendir ríkisborgarar eru frá Póllandi

Flestir erlendir ríkisborgarar eru frá Póllandi eða 19.190 og 4.094 einstaklingar eru með litháískt ríkisfang. 
Pólskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 2.180 á síðastliðnum tólf mánuðum eða um 12,8% og litháískum ríkisborgurum um 725 manns eða um 21,5%. 

Hlutfallslega mest fjölgun hjá Króötum og Írökum

Af þeim ríkjum sem eru með yfir 100 ríkisborgara búsetta hér á landi fjölgaði Króötum hlutfallslega mest í ár, um 88%, eða úr 352 í 663 manns. Írökum fjölgaði úr 86 í 165 manns sem telst vera 92% fjölgun.

Alls fjölgaði íbúum landsins á sl. 12 mánuðum um 8.454 manns.

Innflytjendum hefur fjölgað um 67,6% á þremur árum

Frá 1. desember 2015 til 1. desember 2018 hefur erlendum ríkisborgurum fjölgað úr 26.387 í 44.156 manns. Þetta er fjölgun um 67,6%  Á sama tímabili hefur hlutfall erlendra ríkisborgara aukist úr 7,9% í 12,4%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2017 og 1. desember 2018. 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar